Fotbolti.net
23.02.26 - 22:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Sesko kom inn á og tryggði Man Utd sigurinn

England: Sesko kom inn á og tryggði Man Utd sigurinn
Canon

Mynd: EPA

Everton 0 - 1 Manchester Utd
0-1 Benjamin Sesko ('71 )
Benjamin Sesko kom inn á sem varamaður og tryggði Man Utd sigur gegn Everton á útivelli í kvöld.

Man Utd fékk dauðafæri strax í upphafi leiks. Matheus Cunha átti skot sem fór í Amad Diallo. Hann náði síðan skoti á markið en Jordan Pickford náði að snerta boltann áður en James Tarkowski bjargaði á síðustu stundu.

Þetta var annars nokkuð tíðindalítill fyrri hálfleikur og það leit út fyrir að það þurfti mikið að breytast svo það kæmi mark í leikinn.

Everton byrjaði seinni hálfleikinn mjög vel og hinn 19 ára gamli Harrison Armstrong komst í góða stöðu inn á teignum strax á fyrstu mínútu en skotið ekki gott og Senne Lammens handsamaði boltann.

Bryan Mbeumo hefði getað komið Man Utd yfir stuttu síðar en hann skaut yfir úr dauðafæri.

Sesko kom inn á sem varamaður á 58. mínútu og á 71. mínútu braut hann ísinn eftir laglega skyndisókn. Matheus Cunha átti langa sendingu fram völlinn á Bryan Mbeumo sem renndi boltanum á Sesko sem skoraði framhjá Pickford.

Sesko hefði getað innsiglað sigurinn í uppbótatíma en var of lengi að athafna sig og Pickford náði að verja frá honum. Everton setti góða pressu á Man Utd undir lokin en náði ekki að skora.

Man Utd er komið upp í 4. sæti með 48 stig en Everton er í 9. sætii með 37 stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.