23.02.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópa í dag - Albert tæpur fyrir fallbaráttuslag

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það eru tveir leikir á dagskrá í efstu deild ítalska boltans í dag þar sem fallbaráttulið Fiorentina tekur á móti nýliðum Pisa í mikilvægum nágranna- og fallbaráttuslag.
Fiorentina átti hörmulegan fyrri hluta tímabils en hefur verið að skila betri frammistöðum að undanförnu og eru úrslitin að skána. Albert Guðmundsson fór meiddur af velli í jafntefli gegn Torino fyrir tveimur vikum og er tæpur fyrir leikinn í dag.
Fiorentina er í fallsæti sem stendur, þremur stigum frá öruggu sæti, með 21 stig eftir 25 umferðir. Albert og félagar eru fimm stigum fyrir ofan Pisa og þurfa bæði lið á sigri að halda.
Í kvöld eigast Bologna og Udinese svo við í spennandi slag þar sem aðeins eitt stig skilur liðin að um miðja deild.
Þá er einn leikur á dagskrá í spænska boltanum þegar Alavés fær Girona í heimsókn í neðri hluta La Liga.
Þrjú stig skilja að á milli liðanna og er Alavés aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Girona lagði Spánarmeistara Barcelona afar óvænt að velli í síðustu umferð og mæta leikmenn liðsins því með gott sjálfstraust í kvöld.
Serie A
17:30 Fiorentina - Pisa
19:45 Bologna - Udinese
La Liga
20:00 Alaves - Girona

Serie A - karlar
La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 10 | +29 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 10 | +15 | 24 |
| 4 | Betis | 10 | +2 | 20 |
| 5 | Real Sociedad | 10 | +1 | 19 |
| 6 | Sevilla | 9 | -2 | 14 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Celta | 10 | +3 | 12 |
| 9 | Athletic | 9 | +3 | 12 |
| 10 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 11 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 12 | Osasuna | 9 | -8 | 11 |
| 13 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 14 | Levante | 10 | -3 | 10 |
| 15 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 16 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 17 | Getafe | 10 | -10 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |