Fotbolti.net
23.02.26 - 11:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Klopp: Gæti varla verið meiri bilun

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool, er mjög heillaður af því sem norska félagið Bodö/Glimt er að gera um þessar mundir.

Bodö/Glimt hefur tekið yfir norskan fótbolta síðustu ár og er núna að gera magnaða hluti í Meistaradeildinni. Eftir að hafa lagt bæði Atletico Madrid og Manchester City að velli, þá komst Bodö í umspilið þar sem þeir unnu fyrri leik sinn gegn ítalska stórliðinu Inter, 3-1.
Gamli Valsarinn kostar nú meira en milljarð - „Okkur fannst hann mjög góður"
TENGT EFNI

Gamli Valsarinn kostar nú meira en milljarð - „Okkur fannst hann mjög góður"

Klopp var nýverið staddur keppni í boðgöngu karla í skíðaskotfimi á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu á dögunum og nýttu norskir fjölmiðlar tækifærið til að spyrja hann út í ævintýri Bodö.

„Þetta gæti varla verið meiri bilun," sagði Klopp. „Vá, Atletico Madrid, Manchester City og Inter."

Klopp er heillaður af þeirri vinnu sem Kjetil Knutsen er búinn að vinna með Bodö. Hann segist einu sinni hafa reynt að hringja í Knutsen en fékk ekkert svar.

„Ég vil vita meira um það sem þeir eru að gera. Þetta er mjög áhugavert," segir Klopp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.