Fotbolti.net
23.02.26 - 16:00
Kári Snorrason

Mourinho nýtir rétt sinn og ræðir ekki við fjölmiðla

Mourinho er í banni í endurkomunni á Bernabeu.

Mourinho er í banni í endurkomunni á Bernabeu.

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho mun ekki ræða við fjölmiðla hvorki fyrir né eftir seinni leik Benfica gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld.

Allt ætlaði um koll að keyra í fyrri leik liðanna eftir að Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, lét ófögur orð falla í garð Vinicius Junior.
Mourinho: Ég elska hann en af hverju fagnaðirðu svona?
TENGT EFNI

Mourinho: Ég elska hann en af hverju fagnaðirðu svona?

Prestianni var settur í bráðabirgðabann af UEFA og mun ekki spila á miðvikudag. Undir lok leiks var svo Mourinho rekinn af velli eftir að hann hafa fengið tvö gul spjöld fyrir mótmæli.

Sky Sports segir frá að hann ætli sér að sleppa fjölmiðlaskyldum fyrir og eftir leikinn á Bernabeu. Þjálfarar eru skyldugir til að ræða við fjölmiðla fyrir og eftir leiki nema ef þeir eru í leikbanni.

Aðstoðarþjálfarinn Joao Tralhao mun sinna fjölmiðlum í hans stað. Hann mun halda blaðamannafund á Bernabeu síðdegis á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.