Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 22:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes: Slökktum á okkur og gáfum þeim þetta tækifæri
Mynd: EPA
David Moyes var að vonum svekktur eftir 1-0 tap Everton gegn Man Utd í kvöld.

„Við verðum að vinna leiki ef við ætlum að komast lengra. Við höfum ekki gert það eins oft og við viljum, sérstaklega á heimavelli. En hvað frammistöðu varðar, við töpuðum naumlega gegn Man Utd, við unnum þá naumlega á Old Trafford. Við fögnuðum þá og nú þeir," sagði Moyes.

Benjamin Sesko skoraði eina mark leiksins eftir skyndisókn. Moyes var ekki nægilega sáttur með sína menn í aðdragandanum.

„Miðjumaðurinn okkar sendi fyrirgjöf og það vinstri bakvörðurinn var þarna. Við vorum ekki skipulagðir án boltans. Ég verð að hrósa þeim fyrir skyndisóknina en við höfum séð þá gera þetta undanfarið og það vel. Við stjórnuðum þessu nokkuð vel heilt yfir en þarna slökktum við á okkur og gáfum þeim þetta tækifæri."
Athugasemdir
banner
banner