Rodri eftirsóttur - Liverpool vill tyrkneskan varnarmann - Julian Alvarez aftur til Englands? - Man Utd og Arsenal berjast um varnarmann
   mán 23. febrúar 2026 23:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sesko: Hef trú á sjálfum mér og hinir leikmennirnir líka
Mynd: EPA
Benjamin Sesko var hetja Man Utd þegar liðið vann Everton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hann skoraði eina mark leiksins eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann hefur byrjað á bekknum í síðustu fjórum leikjum en skorað þrjú mörk.

„Það var mjög mikilvægt fyrir okkur að vinna leikinn. Þetta var mjög erfitt, við börðumst, þeir börðust, þetta var jöfn orusta en við tryggðum sigurinn," sagði Sesko.

„Það er mikilvægt fyrir mig að reyna hjálpa liðinu þegar ég kem inn á. Þess vegna er ég hérna, það skiptir ekki máli hvort það sé á fimm mínútum eða 90 mínútum. Þetta snýst um að ég standi mig eins vel og hægt er."

„Ég hef trú á sjálfum mér og hinir leikmennirnir líka. Þeir vita hvað þeir fá þegar ég kem inn á. Það er að sjálfsögðu undir mér komið að sanna mig."
Athugasemdir
banner
banner