Fotbolti.net
23.02.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tudor: Markmiðið er að verða alvarlegir

Tudor: Markmiðið er að verða alvarlegir
Canon

Mynd: EPA

Igor Tudor stýrði Tottenham í fyrsta sinn þegar liðið steinlá á heimavelli gegn Arsenal í úrvalsdeildinni í gær.
Tudor svaraði spurningum eftir leikslok og segist vera handviss um að liðið sé að fara að halda sér í deildinni þrátt fyrir að vera í óvæntri fallbaráttu, aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

„Þetta var erfiður leikur gegn sterku liði, mögulega besta liði í heimi. Þetta er ekki besta byrjunin fyrir okkur en við sjáum til hvað gerist næsta sunnudag," sagði Tudor, en Tottenham heimsækir Fulham í öðrum Lundúnaslag um næstu helgi. Fulham er átta stigum fyrir ofan Tottenham.

„Auðvitað er ég sannfærður um að við föllum ekki niður um deild útaf því að þetta eru góðir leikmenn með slæmar venjur. Það getur enginn sagt mér að það séu ekki gæði í þessum leikmannahópi. Við þurfum að breyta hugarfarinu sem fyrst.

„Hvað er markmiðið okkar? Hvað er markmið félagsins? Hvar er markmið liðsins? Hvar er markmið þjálfarans? Og leikmanna? Og starfsteymisins? Að verða alvarlegir.

„Markmiðið er að verða alvarlegir og ekki bara hópurinn af 20 leikmönnum. Meðalið er að horfa í spegilinn. Við þurfum allir með tölu að horfa í spegilinn og virkilega byrja að breyta þessum slæmu venjum."


Tudor: Mörg vandamál í þessu liði
TENGT EFNI

Tudor: Mörg vandamál í þessu liði




"Where is the goal of this club? Where is the goal of this team?" Igor Tudor's brutally honest assessment of Tottenham after his first match in charge
by
u/Shyam_Wenger in
soccer

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.