23.03.15 - 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
Kempan Matthías Guðmundsson til KH (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson


Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Hinn 34 ára gamli Matthías Guðmundsson er kominn til KH sem leikur í 4. deild karla.
Matthías var spilandi aðstoðarþjálfari Hauka á síðasta tímabili þar sem hann lék 16 leiki og skoraði eitt mark í fyrstu deildinni.
Matthías var spilandi aðstoðarþjálfari Hauka á síðasta tímabili þar sem hann lék 16 leiki og skoraði eitt mark í fyrstu deildinni.
Matthías á langan feril að baki þar sem hann ólst upp hjá Val og lék þar frá 1999 til 2006, þegar hann fór í FH. Hjá FH varð Matthías Íslandsmeistari árið 2008 en fór aftur yfir til Vals um mitt sumar árið 2009.
Matthías, sem á fjóra landsleiki að baki, var tíður byrjunarliðsmaður hjá Val allt þar til hann fór til Hauka í fyrra.
Matthías, sem á fjóra landsleiki að baki, var tíður byrjunarliðsmaður hjá Val allt þar til hann fór til Hauka í fyrra.
Heimild: MBL
