23.04.21 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristín Erna frá ÍBV í Víking (Staðfest)

Kristín Erna í leik með KR síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur gengið í raðir Víkings í Reykjavík fyrir komandi tímabil.
Kristín Erna spilaði með KR á nýliðnu tímabili þar sem hún skoraði eitt mark í fjórtán leikjum þegar liðið féll úr Pepsi Max-deildinni.
Hún gekk í raðir ÍBV í nóvember síðastliðnum en hún mun ekki spila með ÍBV í sumar.
Hún spilar í Fossvoginum með Víkingum sem höfnuðu í sjöunda sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð.
Kristín, sem er 29 ára, á að baki 136 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim 45 mörk. Kristín hefur lengst af á ferlinum spilað með ÍBV en auk þess að spila með KR í ár þá lék hún með Fylki árið 2016.