Man City hefur staðfest að Pep Guardiola muni yfirgefa félagið eftir síðasta leik tímabilsins á morgun eftir tíu ár hjá félaginu.
Pep Lijnders, aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá Man City, mun einnig yfirgefa félagið. City vildi að hollenski þjálfarinn yrði áfram og hluti af nýjum tímum hjá félaginu.
Pep Lijnders, aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá Man City, mun einnig yfirgefa félagið. City vildi að hollenski þjálfarinn yrði áfram og hluti af nýjum tímum hjá félaginu.
Enzo Maresca, fyrrum stjóri Chelsea, mun taka við af Guardiola en Lijnders kaus að skrifa ekki undir nýjan langtíma samning um að verða einn af aðstoðarmönnum Maresca.
Lijnders kveður liðið eftir leik liðsins gegn Aston Villa á morgun. Hann gekk til liðs við City síðasta sumar og gerði eins árs samning með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Hann var áður aðstoðarþjálfari hjá Liverpool en yfirgaf félagið árið 2024 þegar Jurgen Klopp hvarf á braut.



