Fotbolti.net
23.05.26 - 17:39
Ívan Guðjón Baldursson

Hull átti að falla miðað við xG

Hull átti að falla miðað við xG
Canon

Mynd: Hull City

Hull City tryggði sér þátttökurétt í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð með dramatískum sigri gegn Middlesbrough í afar umtöluðum úrslitaleik Championship umspilsins.
Oli McBurnie skoraði eina mark leiksins á 95. mínútu til að tryggja Hull upp um deild, en eigandi félagsins ýjaði fyrir nokkrum dögum að lögsókn ef Hull myndi tapa úrslitaleiknum.

Tilbúinn í málaferli ef Hull tapar úrslitaleiknum
TENGT EFNI

Tilbúinn í málaferli ef Hull tapar úrslitaleiknum



Áhugaverð tölfræði hefur sprottið upp á samfélagsmiðlum eftir úrslitaleikinn þar sem vakin er athygli á xG tölfræðinni svokallaðari. Hún nær yfir áætluð mörk miðað við aðstæður marktilrauna.

Samkvæmt xG tölfræðinni átti Hull City að falla niður um deild í stað þess að fara upp, sem er merki um hversu vel leikmenn liðsins nýttu færin sín og hversu vel varnarmennirnir og markvörðurinn stóðu sig í að koma í veg fyrir mörk þegar andstæðingarnir fengu hættuleg færi. Einhverjir myndu kalla stóran hluta af því heppni.

Hull fer því upp um deild ásamt toppliðunum tveimur, Coventry City og Ipswich Town.

Championship: Mikil dramatík þegar Hull tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni
TENGT EFNI

Championship: Mikil dramatík þegar Hull tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni

Hull átti að falla miðað við xG
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.