Oli McBurnie var hetja Hull City sem lagði Middlesbrough að velli í úrslitaleik Championship umspilsins í dag.
Hann skoraði gríðarlega verðmætt sigurmark á 95. mínútu leiksins. Enskir fjölmiðlar tala um 200 milljón punda mark vegna himinhárra greiðslna fyrir sjónvarpsréttindi í deild þeirra bestu.
„Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem ég verð orðlaus," sagði Oliver McBurnie eftir lokaflautið.
„Þessi leikur lýsir okkur mjög vel sem liði. Við vissum að við myndum ekki halda boltanum mikið gegn þeim en við gáfum virkilega gæðamiklum andstæðingum góðan leik. Okkur leið eins og við myndum fá tækifæri til að sigra leikinn og mér leið eins og það hafi verið skrifað í skýin að ég myndi fá þetta færi. Ég bjóst ekki við að fá það svona seint, en vá... þvílíkt tilfinningaflóð.
„Minningin er þokukennd akkúrat þessa stundina en ég er svo ánægður. Ég var svo spenntur fyrir þessum leik að ég gat ekki sofnað í gærkvöldi."
McBurnie er 29 ára gamall og lék 14 landsleiki fyrir Skotland á árunum 2018 til 2021. Hann var að vonast til að komast í landsliðshópinn fyrir HM en var ekki valinn.
„Fótbolti getur verið leikur skoðana og mér líður eins og ég hafi gefið sjálfum mér sem besta möguleika á að komast í landsliðshópinn eins og ég mögulega gat. Þegar allt kemur til alls er þetta ákvörðun þjálfarans og ég þarf að bera virðingu fyrir henni. Sumir af þessum strákum í landsliðinu eru bestu vinir mínir, ég mun styðja þá frá einhverjum heitum stað með bjór í hendi."
McBurnie lék síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2023-24 og skoraði 6 mörk í 21 leik með Sheffield United sem féll.
23.05.2026 16:36
Championship: Mikil dramatík þegar Hull tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni



