Fotbolti.net
23.05.26 - 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Segir Jökul kominn á endastöð - „Það er krísa"

Segir Jökul kominn á endastöð - „Það er krísa"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, er undir mikilli pressu eftir 1-0 tap liðsins gegn Fram í gær. Liðið ætlaði sér stóra hluti á tímabilinu en liðið hefur aðeins nælt í sjö stig í fyrstu átta leikjunum.

Það var umræða um Stjörnuna í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag þar sem Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson voru gestir hjá Elvari Geir Magnússyni og Val Gunnarssyni.
Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi
TENGT EFNI

Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi

„Þegar maður var að hugsa um þetta lið og hversu mikið það er búið að eyða þá er ákveðið sjokk að skoða byrjunarliðið í leiknum í gær. Það eru ekki margir leikmenn í Stjörnuliðinu sem kæmust í Fram. Þá spyr maður sig: Hvernig er búið að vera byggja þetta lið upp?" sagði Valur.

„Ofan á stefnuleysi í spili og annað þá eru gæðin á vellinum gríðarlegt áhyggjuefni. Það er krísa þarna, þeir eru með sjö stig eftir átta leiki. Eina ástæðan fyrir því að þeir eru ekki í fallsæti er sú að það eru þrjú mikið lélegri lið þarna fyrir neðan."

„Við erum að horfa á öll hin liðin að slípa sig saman. Blikarnir og Víkingar eru farnir að skora. Allir farnir að rúlla í takt en Stjarnan er í hafinu," sagði Sverrir.

„Hann hefur ekki náð þeim árangri sem Stjörnumenn vilja að hann nái. Svo finnst mér hann ekki finna liðið sitt, veit ekkert hvar hann á að hafa Gumma Kristjáns. Hann veit ekkert hvað senter á að byrja. Andri Rúnar kemur inn í fyrstu leikina og er stórkostlegur, svo kemur Emil inn og Andri á bekkinn og sem framherji hugsaru: 'Ég er búinn að skora í þremur leikjum í röð og beint á bekkinn af því Emil er heill'," sagði Andri.

Er Jökull kominn á endastöð?
„Ég myndi segja já. Auðvitað óskar maður engum að vera rekinn. En miðað við hvernig þetta er, andleysi og annað, þá finnst manni þetta vera þannig. Þeir fara á skrið í lokaleikjunum í 22 liða móti í fyrra þegar þeir fengu Caulker inn. Svo fer hann og þeir fá ungan aðstoðarþjálfara, Hrannar Boga, og maður spyr sig hvort maður þurfi ekki einhvern til að 'challenga' þig þegar þú ert í þessari stöðu. Hann þekkir Hrannar og hann er mjög góður þjálfari, ekki að tala hann niður. Spurning hvort Caulker var mikilvægari í því hlutverki í fyrra en maður gerir sér grein fyrir," sagði Valur.
Steven Caulker

Steven Caulker

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki

Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.