Fylkir steinlá fyrir Stjörnunni þegar liðin mættust á Samsung vellinum í Garðabæ fyrr í dag. Stjörnumenn náðu forystunni um miðbik fyrri hálfleiks en Fylkismenn jöfnuðu örskömmu síðar.
Allar flóðgáttir opnuðust svo í sóknarleik Garðbæinga í síðari hálfleik og þegar lokaflautið gall höfðu þeir bætt 4 mörkum við og lokatölur því 5-1 Stjörnunni í vil.
Allar flóðgáttir opnuðust svo í sóknarleik Garðbæinga í síðari hálfleik og þegar lokaflautið gall höfðu þeir bætt 4 mörkum við og lokatölur því 5-1 Stjörnunni í vil.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 1 Fylkir
„Mér fannst við rúlla yfir þá í fyrri háfleik þeir komast varla yfir miðju. Svo skora þeir þetta mark algjörlega gegn gangi leiksins en við sýnum karakter og komum til baka og jöfnum 1-1 og förum inní hálfleik nokkuð sáttir. Svo gefum við þeim annað mark og reöctum kannski ekki nægjanlega vel," sagði Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður Fylkis, um hvernig leikur dagsins horfði við honum.
Fylkismenn voru töluvert meira með boltann lungan úr leiknum og hefði vel verið sanngjarnt að Fylkir færi til hálfleiks með forystuna. En það er væntanlega ekki ásættanlegt að koðna svona niður líkt og liðið gerði í síðari hálfleik.
„Að sjálfsögðu ekki. Við erum ekki vanir að gera þetta. Þetta er mjög óvanalegt í okkar liði en við þurfum bara að líta inná við og sjá til þess að þetta gerist ekki aftur.“
Sagði Ólafur Ingi en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir