Fotbolti.net
23.06.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Siggi Höskulds: Held það verði töluvert öðruvísi hópur í næsta leik

Öflugt fyrir Þór að endurheimta Greko.

Öflugt fyrir Þór að endurheimta Greko.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar gætu nýtt þrjá leikmenn í komandi leik gegn Val næsta sunnudag sem ekki komu við sögu í leiknum gegn FH síðasta sunnudag.

Þá lék Ragnar Óli Ragnarsson einungis síðustu tíu mínúturnar í leiknum gegn FH. Leikmennirnir þrír sem um ræðir eru þeir Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Christian Greko Jakobsen sem tóku út leikbann gegn FH og Atli Sigurjónsson sem er að snúa til baka eftir meiðsli og var ónotaður varamaður gegn FH.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 Þór
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn gegn FH.

„Það er mjög stórt að fá Greko til baka, við fáum líka Bjarna Guðjón til baka og ég myndi segja að við fáum Ragnar Óla til baka. Ég held það verði töluvert öðruvísi hópur í næsta leik miðað við hópinn í dag (sunnudag) og síðasta leik á undan."

Þurftu að gera margt sem þeir höfðu ekki verið að gera
Þór náði í sitt fyrsta stig á sunnudag eftir sjö leikja taphrinu.

„Við endurræstum okkur í vikunni. Ákváðum að kafa djúpt í grunngildin, hvað það þýðir að spila fyrir Þór og hvað það þýðir að spila í efstu deild. Þá þarf að gera margt sem við erum ekki búnir að gera í síðustu leikjum. Þetta er hundrað þúsund prósent eitthvað til þess að byggja ofan á," sagði Siggi á sunnudag.
Atli Sigurjónsson og Bjarni Guðjón spiluðu ekki gegn Val.

Atli Sigurjónsson og Bjarni Guðjón spiluðu ekki gegn Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þá leið manni svona að þetta væri týpískt við það að lið í brekku að fá svona mörk á sig"

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.12+3534
2KR12+1528
3Fram11+523
4Breiðablik11+919
5Valur12-416
6ÍA11-515
7Keflavík11-712
8Stjarnan12-511
9ÍBV11-511
10KA11-610
11Þór11-197
12FH11-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.