Fotbolti.net
23.06.26 - 09:30
Kári Snorrason

Rogers vill fara til Arsenal - Barcelona sýnir Kane áhuga

Rogers vill fara til Arsenal.

Rogers vill fara til Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Morgan Rogers vill fara til Arsenal í sumar, Marcus Rashford er tilbúinn að taka á sig launalækkun fyrir Tottenham og Barcelona hefur kannað hvort Harry Kane vilji færa sig um set. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Morgan Rogers (23), miðjumaður Aston Villa og enska landsliðsins, vill fara til Arsenal í sumar og er efstur á óskalista Englandsmeistaranna. (Talksport)

Marcus Rashford (28), framherji Manchester United og enska landsliðsins, er tilbúinn að taka á sig launalækkun til að ganga til liðs við Tottenham fyrir 40 milljónir punda í sumar eftir lánsdvöl sína hjá Barcelona. (i Paper)

Tottenham er bjartsýnt um að geta fengið Sandro Tonali (26), miðjumann Newcastle og ítalska landsliðsins, fyrir um 85 milljónir punda. Tonali myndi þó frekar vilja ganga til liðs við Arsenal. (Daily Mail)

Trevoh Chalobah (26), varnarmaður Chelsea sem var kallaður seint inn í HM-hóp Englands, er á óskalista Como þar sem Cesc Fabregas er stjóri. (Fabrizio Romano)

Bayern Munchen og Tottenham hafa bæði áhuga á varnarmanninum Bremer (29) hjá Juventus. Brasilíumaðurinn er sáttur í Tórínó og vill vera áfram hjá félaginu. (Gianluca Di Marzio)

Barcelona hefur óvænt kannað hvort Harry Kane (32), framherji Bayern München og enska landsliðsins, sé tilbúinn að flytja sig til spænska stórliðsins. (Sport)

Manchester United er tilbúið að sætta sig við tap á söluverði Manuel Ugarte (25), miðjumanns úrúgvæska landsliðsins, til að koma honum frá félaginu í sumar. (The Sun)

Leeds United er nálægt því að ganga frá samningi við Shea Charles (22), miðjumann Southampton og norður-írska landsliðsins, sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum. (Teamtalk)

Brighton er nálægt því að semja við Michael Svoboda (27), varnarmann Venezia og austurríkis. (Sky Sports)

Arsenal hefur enn ekki náð samkomulagi um kaup á Andria Bartishvili (17), miðjumanni Kolkheti og U21 árs landsliðs Georgíu. Liverpool og Paris FC vinna einnig að því að fá leikmanninn. (Talksport)

Jean-Clair Todibo (26), varnarmaður West Ham og franska landsliðsins, er nálægt því að ganga í raðir Fenerbahce á láni eftir fall West Ham úr ensku úrvalsdeildinni. (Star)
Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Tottenham vill Sandro Tonali.

Tottenham vill Sandro Tonali.

Canon

Mynd: EPA

Harry Kane.

Harry Kane.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.