Tuchel ekki hrifinn af vatnspásunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Vatnspásurnar á HM hafa verið mjög umdeildar, áhorfendur hafa baulað þegar þær eru gerðar eftir 22 mínútur í hvorum hálfleik.
Einhverjar sjónvarpsstöðvar fagna þessu en bandaríska sjónvarpsstöðin Fox hefur sem dæmi nýtt þær í auglýsingar.

TENGT EFNI
Baulað á vatnspásurnar - Íslendingar ekki hrifnir
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, er ekki mjög hrifinn af vatnspásunum en sér þó jákvæðu hliðarnar.
„Ég held að þetta trufli og breyti ímynd fótboltaleiks miklu meira en ég hélt. Auðvitað tók ég vatnspásur áður þegar það var mjög, mjög heitt og nauðsynlegt en þær voru styttri," sagði Tuchel.
„Þær voru bara í nokkrum leikjum. Núna er þetta sanngirni gagnvart öllum liðum. Núna skiptir þetta leiknum næstum í fjóra fjórðunga og það breytir eðli leiksins meira en ég hélt.“
„Sem þjálfari líkar mér að hafa áhrif og halda liðinu mínu saman en almennt séð held ég að mér líki fótbolti þegar hann er spilaður í einni lotu, í einum helmingi. Það byggir upp skriðþunga, það er hluti af leiknum.“