Fotbolti.net
23.06.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man Utd tilbúið að selja Ugarte fyrir lægra verð

Man Utd tilbúið að selja Ugarte fyrir lægra verð
Canon

Mynd: EPA

Manuel Ugarte gekk til liðs við Man Utd fyrir 42 milljónir punda árið 2024. The Sun greinir frá því að félagið er tilbúið að selja hann á lægra verði í sumar.

Miðjumaðurinn, sem er nú á HM með Úrúgvæ, hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann kom frá Paris Saint-Germain í ágúst 2024.
Leikmaður Man Utd fyrstu kaup Amorim?
TENGT EFNI

Leikmaður Man Utd fyrstu kaup Amorim?

Ugarte byrjaði aðeins átta leiki í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, þar sem Kobbie Mainoo og Casemiro voru framar í goggunarröðinni hjá Michael Carrick í seinni hluta tímabilsins.

Casemiro hefur yfirgefið United eftir að samningur hans við félagið rann út en Ugarte virðist nú einnig líklegur til að vera hluti af endurskipulagningu á miðjunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.