Fotbolti.net
23.06.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tveir úr KR fengu 9,2 í einkunn

Arnór Ingvi var stórkostlegur í gær.

Arnór Ingvi var stórkostlegur í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR og ÍA buðu upp á einn skemmtilegasta leik fótboltasumarsins í gær þegar liðin mættust í Bestu deildinni í gær. Leikurinn í Vesturbænum endaði með 5-3 sigri KR eftir að staðan hafði verið 2-2 í hálfleik.

Það var varla dauð sekúnda í leiknum þar sem bæði lið óðu í færum. Það sést á tölfræðinni þar sem KR átti 28 marktilraunir á meðan ÍA átti 23 marktilraunir. KR átti níu skot á markið og ÍA átti sjö skot á markið þannig að það var nóg hjá markvörðunum að gera.
Fótbolti.net kynnir nýja áskriftarleið og nýtt útlit
TENGT EFNI

Fótbolti.net kynnir nýja áskriftarleið og nýtt útlit

Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA
Það er athyglisvert í tölfræðinni að KR skapaði fjögur „stór tækifæri" á meðan ÍA skapaði engin „stór tækifæri".

KR-ingar unnu fleiri einvígi, 50 gegn 42, og unnu leikinn að lokum sanngjarnt.

Þá voru Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason eins og kóngar í ríki sínu í liði KR. Þeir fengu báðir 9,2 í einkunn sem byggð er á tölfræðigögnum sem finna má í textalýsingunni, en Hrafn Tómasson heldur áfram að spila frábærlega og var með 9,0 í einkunn fyrir frammistöðu sína í leiknum.

Ítarleg tölfræði í textalýsingum
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá hefur Fótbolti.net hafið áskriftarþjónustu. Markmiðið er að bjóða lesendum upp á ítarlegri og vandaðri umfjöllun en nokkru sinni fyrr.

Eitt af því sem innifalið er í áskriftarþjónustunni er ítarleg tölfræði frá StatsPerform (áður Opta) í textalýsingum úr Bestu deild karla, Heimsmeistaramótinu og ensku úrvalsdeildinni. Jafnframt verður bein textalýsing frá öllum leikjum HM og ensku úrvalsdeildarinnar næsta tímabil.

Áskriftarleiðin er ætluð þeim sem vilja kafa enn dýpra og styðja um leið við áframhaldandi uppbyggingu miðilsins.


Þetta er hægt að nálgast á áskriftarvef Fótbolta.net.

Þetta er hægt að nálgast á áskriftarvef Fótbolta.net.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Svona er tölfræðin hans Arnórs Ingva úr leiknum.

Svona er tölfræðin hans Arnórs Ingva úr leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.