Fotbolti.net
23.07.15 - 08:30
Arnar Geir Halldórsson

Bernard Mensah til Atletico Madrid - Lánaður til Getafe (Staðfest)

Bernard Mensah

Bernard Mensah

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur fest kaup á hinum tvítuga Bernard Mensah frá portúgalska félaginu Vitoria Guimaraes
Mensah gerir sex ára samning við Madrídarliðið en um leið var tilkynnt að hann yrði lánaður til Getafe á næstu leiktíð.

Þar mun þessi ungi miðjumaður fá að stíga sín fyrstu skref í La Liga en þrátt fyrir ungan aldur hefur Mensah unnið sér sæti í A-landsliði Gana.

Mensah lék 30 leiki með Vitoria Guimaraes í portúgölsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk.

Atletico Madrid hefur verið mjög virkt á leikmannamarkaðnum í sumar og mun tefla fram mikið breyttu liði á komandi leiktíð en meðal leikmanna sem liðið hefur fjárfest í má nefna Jackson Martinez, Stefan Savic, Luciano Vietto og Yannick Ferreira Carrasco.

Þá hefur liðið misst sterka leikmenn á borð við Arda Turan, Mario Mandzukic og Joao Miranda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.