Fotbolti.net
23.07.15 - 20:00
Stefán Haukur

Chelsea fær til sín ungan Serba (Staðfest) - Lánaður strax til Vitesse

Danilo Pantic og Harry Kane.

Danilo Pantic og Harry Kane.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur fengið til sín Serbann unga, Danilo Pantic, frá Partizan Belgrade. Pantic mun þó ekki leika með Chelsea á komandi tímabili þar sem hann mun fara beint til Vitesse á láni eins og ófáir ungir leikmenn Chelsea.
Pantic, sem getur spilað bæði sem vinstri kantmaður og sem sóknarsinnaður miðjumaður, skrifar undir fjögurra ára samning við Chelsea.

„Ég er mjög ánægður með ánægður með að skrifa undir hjá Chelsea og ég vona að ég geti sýnt mig og sannað hjá Vitesse á næsta tímabili sagði Pantic í viðtali við heimasíðu Chelsea.

„Það er heiður að bæði þessi lið sýni mér áhuga,“ bætti hann við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.