Fotbolti.net
23.07.15 - 15:34
Magnús Már Einarsson

Króatískur framherji í Víking Ó. (Staðfest)

Króatískur framherji í Víking Ó. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík hefur fengið króatíska framherjann Hrvoje Tokic í sínar raðir. Tokic spilaði síðast með Aris Limassol í B-deildinni á Kýpur.
Hinn 25 ára gamli Tokic skoraði fimm mörk í níu leikjum með U19 ára landsliði Króata á sínum tíma og hann var á mála hjá króatíska stórliðinu Hadjuk Split frá 2009 til 2012.

Tokic fékk ekki að spila með Hadjuk en síðan þá hefur hann leikið með nokkrum liðum í heimalandi sínu.

Ólafsvíkingar sitja í 2. sætinu í 1. deildinni en í gær fékk liðið miðjumanninn Gunnlaug Hlyn Birgisson á láni frá Breiðabliki.

Ólafsvíkingar mæta Gróttu í 13. umferðinni í 1. deildinni á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.