23.07.15 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Paul Bignot í Keflavík (Staðfest)

Paul Bignot í leik með Grimsby.

Mynd: Getty Images

Paul Bignot í leik með Grimsby.

Mynd: Getty Images
Keflavík hefur samið við enska varnarmanninn Paul Bignot en Vísir.is greinir frá þessu í dag.
„Þjálfurunum líst mjög vel á hann og við teljum að hann geti styrkt vörnina okkar. Hann var mjög spenntur fyrir því að spila á Íslandi,\" sagði Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur við Vísi.
Bignot er uppalinn hjá Crewe en hefur einnig leikið með Kidderminster, Newport, Plymouth og Grimsby. Hann samdi við Blackpool árið 2011 er liðið var nýfallið úr ensku úrvalsdeildinni en náði ekki að spila leik með liðinu.
Undanfarin tvö ár hefur Bignot spilað með Grimsby í ensku utandeildinni.
Farid Zato og Chukwudi Chijindu komu báðir til Keflavíkur fyrir 7-1 tapið gegn Víkingi um síðustu helgi og þá er norski framherjnn Martin Hummervoll að koma á láni frá Viking.