23.07.19 - 08:36
Magnús Már Einarsson
Theodór Elmar að skipta um félag í Tyrklandi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason er að skipat um félag í Tyrklandi og ganga í raðir Akhisarspor. <a href="https://islendingavaktin.is/theodor-elmar-faerir-sig-um-set-i-tyrklandi/" target="_blank">Íslendingavaktin greinir frá þessu</a> og vitnar í tyrkneska blaðamanninn Serkan Akkoyun.
Theodór Elmar fór frá Elazigspor seint á síðasta ári eftir að hafa ekki fengið gredd laun hjá félaginu og þá gekk hann í raðir Gazişehir Gaziantep í B-deildinni.
Theodór Elmar fór upp í úrvalsdeild með Gazişehir Gaziantep í vor en hann er nú á förum frá félaginu.
Hinn 32 ára gamli Elmar er sagður á leið til Akhisarspor sem féll úr tyrknsku úrvalsdeildinni í vor og leikur því í B-deildinni á komandi tímabili.
Elmar hefur skorað eitt mark í 42 landsleikjum fyrir Íslands hönd en hann á langan feril í baki atvinnumennsku erlendis. Áður en hann kom til Tyrklands lék Elmar með Celtic í Skotlandi, Lyn í Noregi, Gautaborg í Svíþjóð og AGF í Danmörku.