23.07.26 - 10:09
Elvar Geir Magnússon
Roma vill Nusa en verðmiðinn er hár

Mynd: EPA

Mynd: EPA
l Corriere dello Sport segir ítalska félagið Roma hafa rætt við umboðsmenn norska landsliðsmannsins Antonio Nusa.
Það verður þó hægara sagt en gert að fá hann frá RB Leipzig en þýska félagið vill ekki hlusta á tilboð undir 55 milljónum evra.

Roma vill styrkja sóknarleik sinn eftir að hafa misst af Crysencio Summerville sem ákvað að ganga í raðir Al-Hilal frá West Ham.
Ítalskir fjölmiðlar segja að Nusa sé nú helsta skotmark Roma en félagið ætli að athuga hvort Leipzig sé tilbúið að lækka verðmiðann. Rómverjar hafa einnig áhuga á Andreas Schjelderup, liðsfélaga Nusa í norska landsliðinu, en hann er hjá Benfica.