23.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
5. deild: Skoraði þrennu og kom RB aftur á sigurbraut - Smári á toppnum

Kría vann auðveldan sigur á KM

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kría vann auðveldan sigur á KM

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Leonardo Norbert Mitruscsak skoraði öll þrjú mörk RB sem vann 3-0 sigur á KB í 5. deild karla í gær.
Leonardo hefur verið sjóðandi heitur með RB á tímabilinu og hélt uppteknum hætti með þrennu gegn KB.
Hann skoraði tvö mörk með aðeins mínútu millibili undir lok fyrri hálfleiks og fullkomnaði þrennuna seint í leiknum. Leonardo er þar með kominn með 14 mörk í deildinni og er markahæstur í B-riðli.
RB komst aftur á sigurbraut og er í þriðja sæti með 16 stig, sex stigum frá toppliðinu. KB situr sæti neðar með 15 stig en þetta var fyrsta tap liðsins í rúman mánuð.
Í hinum leik B-riðils vann Kría 5-1 stórsigur á KM. Kristófer Melsted skoraði tvívegis fyrir Kríu, sem fagnaði sínum fyrsta sigri síðan 18. júní.
Kría er í sjötta sæti með 14 stig en KM situr á botninum með sjö stig.
Smári vann síðan 6-2 sigur á Þorláki í eina leik A-riðilsins. Ýmir Halldórsson skoraði tvívegis fyrir Smára.
Mikil spenna var í fyrri hálfleik. Smári komst í 2-0 en Þorlákur svaraði með tveimur mörkum og jafnaði áður en flautað var til hálfleiks. Smáramenn tóku hins vegar öll völd eftir hlé, skoruðu fjögur mörk og fögnuðu öruggum sigri.
Smári trónir á toppnum með 28 stig en Þorlákur er í fjórða sæti með 14 stig.
Þorlákur 2 - 6 Smári
0-1 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('13 )
0-2 Julian Ingi Friðgeirsson ('35 )
1-2 Ingvar Óli Sigtryggsson ('37 )
2-2 Sigurður Dan Óskarsson ('41 )
2-3 Skarphéðinn Haukur Lýðsson ('55 , sjálfsmark)
2-4 Kristján Gunnarsson ('80 )
2-5 Ýmir Halldórsson ('85 )
2-6 Ýmir Halldórsson ('86 )
B-riðill:
RB 3 - 0 KB
1-0 Leonardo Norbert Mitruscsak ('42, víti )
1-0 Leonardo Norbert Mitruscsak ('43 )
2-0 Leonardo Norbert Mitruscsak ('78 )
KM 1 - 5 Kría
1-0 Karabo Mgiba ('30 )
1-1 Hannes Ísberg Gunnarsson ('60 )
1-2 Ingi Hrafn Guðbrandsson ('66 )
1-3 Kristófer Melsted ('74 )
1-4 Aðalsteinn Örn Ragnarsson ('80 )
1-5 Kristófer Melsted ('90 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Smári | 11 | +26 | 28 |
| 2 | Skallagrímur | 10 | +28 | 23 |
| 3 | SR | 10 | +11 | 19 |
| 4 | Þorlákur | 10 | +15 | 14 |
| 5 | Hörður Í. | 10 | -15 | 10 |
| 6 | Uppsveitir | 9 | -16 | 9 |
| 7 | KFS | 8 | -8 | 7 |
| 8 | Afríka | 10 | -41 | 3 |