22.07.26 - 18:41
Brynjar Ingi Erluson
Stærsta sala í sögu deildarinnar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona eru nálægt því að ganga frá kaupum á brasilísku landsliðskonunni Kerolin frá Manchester City. Gangi félagaskiptin eftir verður um að ræða stærstu sölu í sögu ensku WSL-deildarinnar.
Kerolin er 25 ára og hefur aðeins verið á mála hjá Manchester City í eitt og hálft ár.
Hún á enn tvö ár eftir af samningi sínum en mun ekki klára þau þar sem Barcelona er að kaupa hana fyrir 1,28 milljónir punda.
Verði félagaskiptin staðfest verður um að ræða stærstu sölu í sögu ensku deildarinnar. Metið á Arsenal, sem greiddi Liverpool eina milljón punda fyrir Oliviu Smith í fyrra.
Kerolin verður jafnframt langdýrasti leikmaður í sögu Barcelona. Fyrra metið var 400 þúsund pund, sem Börsungar greiddu Manchester City fyrir Keiru Walsh fyrir fjórum árum.
Barcelona hefur þegar misst spænsku landsliðskonuna Sölmu Paralluelo frá félaginu og þurfti því að bregðast við með því að sækja reyndan sóknarmann.
Kerolin skoraði níu mörk í fimmtán deildarleikjum með City á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sinn fyrsta Englandsmeistaratitil síðan 2016.