22.07.26 - 22:27
Brynjar Ingi Erluson
Keflavík fær Guðrúnu á láni frá Breiðabliki (Staðfest)

Mynd: Breiðablik

Mynd: Breiðablik

Lengjudeildarlið Keflavíkur hefur fengið Guðrúnu Þórarinsdóttur að láni frá Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks út tímabilið.
Guðrún er 17 ára miðjumaður og uppalin hjá Breiðabliki.
Hún lék sex leiki í Bestu deildinni á láni hjá Tindastóli á síðasta tímabili og hefur komið við sögu í þremur leikjum með Blikum í sumar.
Guðrún fer nú aftur á lán og mun leika með Keflavík út tímabilið.
Hún hefur þegar fengið leikheimild og getur því komið við sögu þegar Keflavík mætir Selfossi í Lengjudeildinni á morgun.
Keflavík hefur unnið tvo leiki í röð og situr í sjötta sæti deildarinnar með 13 stig eftir tíu umferðir.