22.07.26 - 23:40
Brynjar Ingi Erluson

Má fara á láni án kaupákvæðis

Mastantuono má fara á láni

Mynd: EPA

Mastantuono má fara á láni

Mynd: EPA
Spænska stórliðið Real Madrid hefur gefið Argentínumanninum Franco Mastantuono grænt ljós á að fara að láni í sumar.
Mastantuono er 18 ára og talinn einn efnilegasti leikmaður Argentínu.
Real Madrid keypti hann frá River Plate á síðasta ári en honum tókst ekki að finna taktinn á sínu fyrsta tímabili á Spáni. Stjórnarmenn Real telja því best fyrir hann að halda áfram að þroskast hjá öðru félagi.
Madrídingar hafa gefið grænt ljós á lán en munu ekki samþykkja að kaupákvæði fylgi samningnum.
Félagið vill fara svipaða leið og með Endrick á síðari hluta síðasta tímabils þegar hann var lánaður til franska félagsins Lyon án kaupákvæðis.
Real Madrid á einnig eftir að taka ákvörðun um framtíð spænska framherjans Gonzalo Garcia. Til greina kemur að lána hann en hann hefur enn ekki fengið grænt ljós á að fara.
Garcia sló í gegn með Real Madrid á HM félagsliða í fyrra og skoraði fjögur mörk í sex leikjum. Alls kom hann að ellefu mörkum í öllum keppnum á tímabilinu.