23.09.26 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe um Olise: Væri vanvirðing og ósanngjarnt gagnvart Bayern

Kylian Mbappe og Michael Olise

Mynd: EPA

Kylian Mbappe og Michael Olise

Mynd: EPA
Kylian Mbappe, leikmaður Real Madrid og franska landsliðsins, segir að öll félög í heiminum væru til í að fá Michael Olise frá Bayern München.
Í sumar komu reglulega upp fregnir um að Real Madrid væri að undirbúa 150 milljóna evra tilboð í Olise.
Frakkinn hefur verið magnaður síðan hann kom til Bayern München frá Crystal Palace fyrir tveimur árum og er tilnefndur til Ballon d'Or í ár.
Bæði Bayern og Real Madrid reyndu ítrekað að kveða niður orðróminn og var meðal annars haldið fram að Mbappe hefði verið fenginn til að sannfæra Olise um að ganga til liðs við Real. Ummæli Mbappe við BILD benda hins vegar til þess að það hafi aldrei verið raunin.
„Olise og Real Madrid? Ég sá orðróminn, en það væri vanvirðing að ráðleggja leikmanni að yfirgefa Bayern. Það væri mjög ósanngjarnt gagnvart félaginu.“
„Sérstaklega þar sem Bayern er frábært félag þar sem Michael getur afrekað mikið. Auðvitað myndu öll félög í heimi vilja hafa hann í sínu liði því hann er stórkostlegur leikmaður,“ sagði Mbappe við BILD.