Fotbolti.net
23.09.26 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo: Þetta er ekki þráhyggja

Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo

Canon

Mynd: EPA

Landsliðsferli Cristiano Ronaldo er ekki lokið og verður hann til taks fyrir leikina fjóra sem Portúgal spilar í Þjóðadeildinni í þessu verkefni, en hann hefur ekki gefið upp neinn tíma varðandi það hvenær hann mun leggja skóna á hilluna.
Margir töldu að Cristiano Ronaldo hefði spilað sinn síðasta landsleik þegar Spánn sló Portúgal út í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í sumar.

Ronaldo vildi þó ekkert gefa upp um framhaldið og gaf frekar í skyn að hann gæti haldið áfram. Sú tilfinning styrktist enn frekar þegar Jorge Jesus, hans gamli lærimeistari hjá Al Nassr, tók við af Roberto Martinez með portúgalska landsliðið.

Jesus valdi Ronaldo í hópinn fyrir Þjóðadeildina og er hann spenntur fyrir komandi verkefni.

„Ég er ánægður. Þetta er ný keppni og ég er spenntur fyrir þessu. Við eigum fjóra leiki á 15 dögum og við vitum vel að þetta verður krefjandi tímabil, þannig að við þurfum á öllum að halda,“ sagði Ronaldo.

Hann segist áfram tilbúinn að gefa kost á sér svo lengi sem landsliðið vilji hafa hann með.

„Ef Portúgal vill ekki lengur treysta á mig get ég yfirgefið herbúðirnar núna. Það er ekkert vandamál fyrir mig eða forsetann. Þegar þeir vilja ekki lengur treysta á mig í landsliðinu verð ég sá fyrsti til að ræða það við þá.“

„Ef þeir treysta á mig þá treysti ég á þá. Portúgalska fólkið treystir á mig og þess vegna held ég áfram að spila.“

„Ég mun gera það sem þjálfarinn þarf frá mér, hvort sem það er að spila, koma af velli, koma inn á eða jafnvel spila ekki neitt. Ég er til taks því stoltið sem ég finn fyrir að vera fulltrúi Portúgals er meira en hjá öðrum landsliðsmanni.“


Ronaldo er kominn með 979 mörk í öllum keppnum á ferlinum og vantar því aðeins 21 mark til að rjúfa þúsund marka múrinn. Hann hefur aldrei farið leynt með að það sé markmið hans.

„Já, ég vil ná því markmiði og ég mun gera það. En er þetta orðið að þráhyggju? Nei.“

„Ég geri ekki hluti af þráhyggju, því þegar það gerist fara hlutirnir ekki eins og þú vilt að þeir fari,“
sagði Ronaldo.

Portúgal mætir Wales á morgun en á einnig eftir tvo leiki gegn Noregi og einn gegn Danmörku í þessu landsliðsverkefni.
Jorge Jesus valdi Ronaldo í hópinn

Jorge Jesus valdi Ronaldo í hópinn

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.