Fotbolti.net
23.09.26 - 20:59
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna: Þrenna í átta marka sigri - Meistararnir byrja vel

Katoto setti þrennu fyrir Lyon

Katoto setti þrennu fyrir Lyon

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Fyrstu umferðinni í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki lauk í kvöld.
Ríkjandi Evrópumeistarar Barcelona unnu 5-2 sigur á Paris FC frá Frakklandi.

Börsungar lentu undir snemma leiks en sneru taflinu við og skoruðu fjögur mörk áður en fyrri hálfleikur var úti.

Ewa Pajor skoraði tvö mörk og Caroline Graham Hansen átti stóran þátt í sigrinum með einu marki og tveimur stoðsendingum.

Lyon, sigursælasta lið í sögu keppninnar, slátraði svissneska liðinu Servette 8-0. Franska landsliðskonan Marie-Antoinette Katoto skoraði þrennu og Melchie Dumornay skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

Leuven og Roma gerðu markalaust jafntefli og Chelsea vann 1-0 sigur á Austria Vín. Hollenska landsliðskonan Wieke Kaptein skoraði eina mark leiksins á 11. mínútu.

Oud-Heverlee 0 - 0 Roma

Servette Chenois 0 - 8 Lyon
0-1 Laia Balleste ('9, sjálfsmark )
0-2 Marie-Antoinette Katoto ('28 )
0-3 Marie-Antoinette Katoto ('40 )
0-4 Daelle Melchie Dumornay ('45 )
0-5 Marie-Antoinette Katoto ('47 )
0-6 Daelle Melchie Dumornay ('54 )
0-7 Laura Strik ('69, sjálfsmark )
0-8 Ines Benyahia ('89 )

Barcelona 5 - 2 Paris
0-1 Evelyne Viens ('5 )
1-1 Kerolin ('18 )
2-1 Clara Serrajordi ('28 )
3-1 Ewa Pajor ('35 )
4-1 Caroline Graham Hansen ('43 )
5-1 Ewa Pajor ('70 )
5-2 Clara Mateo ('73 )

Chelsea 1 - 0 Austria Wien
1-0 Wieke Kaptein ('11 )
Pajor og Hansen fagna

Pajor og Hansen fagna

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.