Mateta og Abraham á lista Villa - Tveir leikmenn orðaðir við Man Utd - Tottenham vill fá Curtis Jones
   mið 23. október 2019 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Bielsa: Bamford og Nketiah gætu spilað saman
Marcelo Bielsa hefur verið við stjórnvölinn hjá Leeds United í næstum eitt og hálft ár og hefur liðið alltaf verið í toppbaráttunni í Championship deildinni.

Leeds er í öðru sæti deildarinnar eftir þrettán umferðir en gæti dottið niður í þriðja sæti eftir leiki kvöldsins, þar sem Nottingham Forest á leik til góða og fær Hull City í heimsókn.

Stuðningsmenn félagsins eru ekki ánægðir með framherjaval Bielsa á leiktíðinni en hann hefur kosið að nota Patrick Bamford framyfir Eddie Nketiah.

Bamford, 26 ára, er kominn með 4 mörk á 999 mínútum á meðan Nketiah, 20 ára að láni frá Arsenal, er kominn með 5 mörk af bekknum, á aðeins 383 mínútum.

„Það er ekki nema fjórðungur búinn af mótinu, það er nægur tími til að breyta liðinu. Þeir gætu spilað saman og fengið báðir tækifæri til að skína," sagði Bielsa.

„Ég er að reyna að láta þetta virka. Ég get ekki farið eftir vilja stuðningsmanna því eina mínútuna vilja þeir sjá Nketiah en næstu mínútu vilja þeir sjá Bamford. Hver sem er getur verið með skoðun á fótbolta."
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 28 17 7 4 61 31 +30 58
2 Middlesbrough 28 15 7 6 42 29 +13 52
3 Ipswich Town 27 14 8 5 47 24 +23 50
4 Hull City 27 14 5 8 45 39 +6 47
5 Millwall 28 13 7 8 32 35 -3 46
6 Preston NE 28 11 10 7 36 29 +7 43
7 Watford 27 11 9 7 38 32 +6 42
8 Stoke City 28 12 5 11 33 25 +8 41
9 Wrexham 28 10 11 7 40 35 +5 41
10 Derby County 28 11 8 9 38 36 +2 41
11 Bristol City 28 11 7 10 38 31 +7 40
12 QPR 28 11 7 10 38 39 -1 40
13 Birmingham 28 10 8 10 38 37 +1 38
14 Leicester 28 10 8 10 39 41 -2 38
15 Southampton 28 9 9 10 40 40 0 36
16 Swansea 28 10 6 12 31 35 -4 36
17 Sheffield Utd 27 10 2 15 36 40 -4 32
18 Charlton Athletic 27 8 8 11 27 34 -7 32
19 West Brom 28 9 4 15 31 43 -12 31
20 Norwich 28 8 6 14 35 40 -5 30
21 Portsmouth 26 7 8 11 23 36 -13 29
22 Blackburn 27 7 7 13 25 36 -11 28
23 Oxford United 27 5 9 13 25 35 -10 24
24 Sheff Wed 27 1 8 18 18 54 -36 -7
Athugasemdir
banner
banner