Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. október 2019 19:33
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Ajax og Chelsea: Jorginho maður leiksins
Mynd: Getty Images
Michy Batshuayi gerði eina mark leiksins er Chelsea lagði Ajax að velli í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Leikið var í Amsterdam.

Sky Sports fylgdist með leiknum og er búið að gefa leikmönnum einkunnir. Ítalski miðjumaðurinn Jorginho var bestur á vellinum, með 8 í einkunn.

Cesar Azpilicueta fékk einnig 8 rétt eins og varamennirnir tveir, Christian Pulisic og Batshuayi.

Donny van de Beek var bestur í liði Ajax með 7 í einkunn. Enginn þótti afgerandi slakur í liði heimamanna og var leikurinn nokkuð jafn allan tímann.

Ajax: Onana (6), Dest (6), Veltman (6), Blind (6), Tagliafico (6), Alvarez (6), Van de Beek (7), Martinez (6), Ziyech (6), Tadic (5), Promes (6).
Varamenn: Neres (5),

Chelsea: Kepa (7), Azpilicueta (8), Zouma (7), Tomori (7), Alonso (7), Kovacic (7), Jorginho (8), Mount (7), Hudson-Odoi (7), Abraham (6), Willian (6).
Varamenn: Pulisic (8), Bathshuayi (8),
Athugasemdir
banner
banner