Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. október 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Atkinson sá ekki brotið á Old Trafford
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher og félagar á Sky Sports halda uppi skemmtilegri stemningu í kringum úrvalsdeildarleiki.

Þeir nota mikið af tækni til að hjálpa sér í starfi og eru byrjaðir að nota sýndarveruleikagleraugu til að skoða atvik úr leikjum útfrá sjónarhorni dómara.

Carragher nýtti sér þessa tækni til að skoða stórt atvik úr leik Manchester United gegn Liverpool um helgina, sem lauk með 1-1 jafntefli.

Man Utd komst yfir í leiknum en nokkuð augljóst brot átti sér stað í aðdraganda marksins. Martin Atkinson dómari dæmdi ekki brot og sneri ákvörðun sinni ekki við eftir samtal við VAR herbergið.

Upprunalega virtist Atkinson sjá brotið mjög vel en eftir að atvikið var skoðað í sýndarveruleika kom í ljós að Scott McTominay var fyrir sjónlínunni.


Athugasemdir
banner
banner