Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Valur Íslandsmeistari í 40 ára og eldri
Mynd: Valur
Valur tryggði sér í gærkvöldi Íslandsmeistaratitilinn í flokki 40 ára og eldri.

Valur mætti Breiðablik í hreinum úrslitaleik í Fífunni og hafði betur 7-2. Tómas Meyer dæmdi leikinn.

Fyrr í þessum mánuði hafði Valur betur 4-2 gegn Stál-Úlfi í undanúrslitum en Breiðablik sigraði þar Létti 3-2.

Valur hefur verið með sigursælt lið í flokki 40 ára og eldri undanfarin ár.

Eftir leikinn í gær fékk liðið afhentan bikarinn fyrir sigur í mótinu sem og bikar fyrir sigur í mótinu í fyrra, en liðið átti eftir að fá þann bikar afhentan!

Hér í fréttinni má sjá mynd af sigurliði Vals.
Athugasemdir
banner
banner