Fotbolti.net
23.10.21 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Brighton og Man City: Foden skein - Lamptey öflugur

Einkunnir Brighton og Man City: Foden skein - Lamptey öflugur
Canon

Mynd: Getty Images

Phil Foden var besti maður vallarins er Manchester City rúllaði yfir Brighton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Man City komst í þriggja marka forystu á fyrsta hálftíma leiksins og skoraði Foden tvennu ásamt einu marki frá Ilkay Gündogan.

City stjórnaði gangi leiksins í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var jafnari. Tariq Lamptey kom inn af bekknum og var langbesti maður Brighton í leiknum.

Brighton minnkaði muninn með vítaspyrnu á lokakaflanum en Riyad Mahrez kom inn af bekknum og gerði fjórða mark Englandsmeistaranna. Lokatölur 1-4 fyrir City.

Robert Sanchez, Dan Burn, Pascal Gross og Neal Maupay þóttu verstu leikmenn vallarins með 5 í einkunn.

Brighton: Sanchez (5), Dunk (7), Burn (5), Cucurella (7), Veltman (6), Gross (5), Lallana (6), Moder (6), March (6), Trossard (6), Maupay (5)
Varamenn: Lamptey (8), Mwepu (7), Mac Allister (7)

Man City: Ederson (6), Cancelo (8), Dias (7), Laporte (7), Walker (7), Silva (9), Rodri (7), Gundogan (8), Grealish (8), Foden (9), Jesus (8)
Varamenn: De Bruyne (7), Mahrez (7), Fernandinho (7)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.