23.10.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Hrafnhildur Ása skoraði fimmu í átta marka leik

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sierra Marie Lelii

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistararnir luku leik með glæsibrag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir fór hamförum þegar Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu stórsigur á FH, sem hreppti silfrið, í lokaumferð Bestu deildarinnar í kvöld.
Hrafnhildur kom Breiðabliki yfir þegar hún skoraði með skoti fyrir utan teiginn. Hún bætti svo öðru markinu við þegar hún skoraði með fyrstu snertingu eftir sendingu frá Edith Kristínu Kristjánsdóttir.
Hún fullkomnaði síðan þrennu sína með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Hún var ekki hætt því hún bætti fjórða markinu við stuttu síðar. Hrönn Haraldsdóttir náði að klóra í bakkann fyrir FH fyrir lok fyrri hálfleiks.
Hrafnhildur hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik og skoraði fimmta markið þegar boltinn hrökk af henni eftir að Aldís Guðlaugsdóttir varði boltann í hana.
Það var loks komið að öðrum Blika því Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði sjötta markið með skalla eftir fyrirgjöf frá Líf Líf Joostdóttir van Bemmel.
Hafrún Birna Helgadóttir klóraði í bakkann fyrir FH í lokin. Lokatölur 6-2.
Nýliðar ÍBV enduðu frábært tímabil með sigri á Stjörnunni. Olga Sevcova kom Eyjakonum yfir snemma leiks og Allison Clark bætti öðru markinu við eftir sendingu í gegn frá Ágústu Maríu Valtýsdóttir.
ÍBV lýkur keppni í 3. sæti en Stjarnan hafnaði í 6. sæti.
Þróttur vann þá góðan sigur á hinum nýliðunum í Grindavík/Njarðvík. Sierra Marie Lelii kom Þrótti yfir strax í upphafi seinni hálfleiks. Hún bætti svo öðru markinu við stuttu síðar þegar hún skoraði með skalla.
Jelena Tinna Kujundzic varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Grindavík/Njarðvík minnkaði muninn.
Bríet Fjóla Bjarnadóttir bætti þriðja marki Þróttar við áður en Hannah McLaughlin minnkaði muninn úr vítaspyrnu en nær komst Grindavík/Njarðvík ekki. Þróttur hafnaði í 4. sæti en Grindavík/Njarðvík í því fimmta.
Breiðablik 6 - 2 FH
1-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('12 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('18 )
3-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('37 )
4-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('42 )
4-1 Hrönn Haraldsdóttir ('44 )
5-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('57 )
6-1 Bryndís Arna Níelsdóttir ('80 )
6-2 Hafrún Birna Helgadóttir ('87 )
Lestu um leikinn
ÍBV 2 - 0 Stjarnan
1-0 Olga Sevcova ('9 )
2-0 Allison Patricia Clark ('39 )
Lestu um leikinn
Þróttur R. 3 - 2 Grindavík/Njarðvík
1-0 Sierra Marie Lelii ('47 )
2-0 Sierra Marie Lelii ('50 )
2-1 Jelena Tinna Kujundzic ('54 , sjálfsmark)
3-1 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('59 )
3-2 Hannah McLaughlin ('71 , víti)