Fotbolti.net
22.11.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Wirtz: Sérstaklega gott eftir að hin liðin misstigu sig

Wirtz: Sérstaklega gott eftir að hin liðin misstigu sig
Canon

Mynd: EPA

Florian Wirtz var líflegur í fjögurra marka sigri Liverpool gegn Manchester United í dag. Hann skoraði glæsilegt mark og lagði annað upp.
England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
TENGT EFNI

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd

Wirtz fór í viðtal eftir leikinn ásamt Rio Ngumoha sem skoraði líka og lagði upp og var valinn besti leikmaður vallarins.

„Við vorum frábærir í dag og ég verð að þakka Rio fyrir þessa stoðsendingu. Mér líður mjög vel," sagði Wirtz sem átti erfiða byrjun í Liverpool treyjunni á síðustu leiktíð en hefur verið að standa sig mjög vel eftir að Andoni Iraola tók við.

Wirtz leikur undir stjórn Jürgen Klopp með þýska landsliðinu og er mjög ánægður með að vera með svona góða þjálfara.

Liverpool er núna með 21 stig eftir 11 umferðir, sjö stigum á eftir toppliði Arsenal sem gerði jafntefli við Newcastle í gær. Þá tapaði toppbaráttulið Brighton sínum leik á meðan Manchester City gerði jafntefli.

„Við töluðum ekki mikið um það fyrir leik en við vissum alveg að sigur í dag væri sérstaklega góður eftir að öll liðin í kring misstigu sig. Ég er mjög ánægður að við nýttum tækifærið."

Táningurinn Ngumoha var líka hress að leikslokum og fagnaði nýju meti sem hann hirti af Michael Owen. Ngumoha er orðinn yngsti leikmaðurinn til að skora í úrvalsdeildarslagnum klassíska á milli Liverpool og Manchester United.

„Það er sérstakt að taka met af leikmanni eins og Michael Owen svo ég er mjög ánægður með þetta afrek. Í mínum augum er Liverpool - Man Utd alltaf risastór leikur og við erum mjög ánægðir með þrjú stig. Við vorum góðir í dag og héldum einbeitingu allan leikinn. Við verðskulduðum þennan sigur," sagði Ngumoha meðal annars.
Wirtz: Sérstaklega gott eftir að hin liðin misstigu sig
Canon

Mynd: EPA

Wirtz: Sérstaklega gott eftir að hin liðin misstigu sig
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+721
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-88
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.