23.11.26 - 13:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík fær Daníel Michal frá ÍA

Á reynslu hjá OB fyrir rúmu ári síðan.

Mynd: ÍA

Á reynslu hjá OB fyrir rúmu ári síðan.

Mynd: ÍA
Keflavík hefur fengið framherjann Daníel Michal Grzegorzsson frá ÍA og skrifar hann undir þriggja ára samning í Keflavík. Kaupverðið þykir ekki hátt.
Daníel er fæddur árið 2009 og lék með 2. flokki ÍA í sumar. Hann er uppalinn fyrir austan og skoraði fyrir KFA í Fótbolti.net bikarnum árið 2024.
Hann á að baki fjóra leiki fyrir unglingalandsliðin og hefur í þeim skorað eitt mark.

TENGT EFNI
Fótbolti.net bikarinn: Tveir fæddir 2009 skoruðu í stórsigri KFA
Daníel er annar leikmaðurinn með sterka tenginu við KFA sem Keflavík fær í vetur því fyrr í þessum mánuði samdi Patrekur Aron Grétarsson við félagið.
Daníel fór seinni hluta ársins 2025 á reynslu til Esbjerg og OB í Danmörku.
Daníel fór seinni hluta ársins 2025 á reynslu til Esbjerg og OB í Danmörku.