23.11.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stjarnan fengið tilboð í Danna Finns

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur fengið tilboð í Daníel Finns Matthíasson. Þetta staðfestir Viktor Bjarki Arnarsson, yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Fótbolti.net fjallaði um það í síðustu viku að Daníel vildi fara frá félaginu, en hann er samningsbundinn út næsta tímabil.

TENGT EFNI
Daníel Finns vill fara frá Stjörnunni
Fyrr í dag var sagt frá þvi að Þróttur vildi fá Daníel en Viktor staðfesti að um tilboð í fleirtölu væri að ræða.
„Við erum bara að skoða þau," segir Viktor.
Daníel er fjölhæfur leikmaður sem fæddur er árið 2000. Hann er uppalinn hjá Leikni.
Hann var í nokkuð stóru hlutverki framan af liðnu tímabili en hlutverkið minnkaði eftir þjálfaraskipti og óskaði leikmaðurinn eftir því að fá að fara í glugganum, en ekkert varð úr því að hann færi.
Jökull Elísabetarson, fyrrum þjálfari Daníels hjá Stjörnunni, tók við sem þjálfari Breiðabliks fyrr í þessum mánuði og er spurning hvort Breiðablik horfi í möguleikann á því að fá Daníel í sínar raðir.