Dominic Matteo, fyrrum leikmaður Liverpool, vill sjá Trent Alexander-Arnold bæta sig varnarlega eftir óvænt 1-0 tap gegn Burnley á dögunum.
Alexander-Arnold er virkilega góður fram á við en sumir hafa sett spurningamerki við varnarvinnu hans í annars öflugu liði Liverpool.
Matteo er einn af þeim sem vill meira frá Trent sem er enn aðeins 22 ára gamall og á nóg eftir af ferlinum.
„Þegar þú ert með leikmenn eins og Trent og Andy Robertson þá er erfitt að skilja þá eftir. Það eru ekki margir í betra formi en þeir í deildinni," sagði Matteo.
„Ég trúi því aöð þeir þurfi þó að gera betur og þá meira Trent. Ég er ekki að skjóta á Trent heldur bara hans varnarvinnu - Jamie Carragher hefur nefnt nokkur atriði."
„Stundum fer hann framarlega of snemma. Stundum þarftu að taka skref til baka og vera í betri stöðu varnarlega."
„Burnley komst nokkrum sinnum í færi því Trent var ekki rétt staðsettur. Ef þú ert úr stöðu gegn Burnley þá munu þeir refsa þér."
Athugasemdir