Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. janúar 2021 07:00
Victor Pálsson
Vonar að Kante snúi aftur næstu helgi
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, vonar að N'Golo Kante verði klár fyrir næsta úrvalsdeildarleik liðsins gegn Burnley.

Kante hefur verið meiddur aftan í læri síðan í byrjun janúar en hann meiddist í 3-1 tapi gegn Manchester City.

Chelsea spilar við Luton í enska bikarnum í hádeginu í dag og verður Kante ekki klár fyrir þann slag.

„Ngolo er ekki heill og verður ekki klár í leikinn. Hann er að vinna í sínum málum með sjúkraþjálfurunum og við vonumst til að fá hann aftur sem fyrst," sagði Lampard.

„Við þurfum að sjá til hvernig það fer, við viljum ekki flýta okkur. Við vonum að hann verði klár fyrir næstu helgi."
Athugasemdir
banner
banner
banner