Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. janúar 2023 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski deildabikarinn: Aðeins eitt mark í fjörugum leik
Mynd: EPA

Southampton 0 - 1 Newcastle
0-1 Joelinton ('73 )
Rautt spjald: Duje Caleta-Car, Southampton ('86)


Mikið gekk á í fyrri undanúrslitaleik Southampton og Newcastle í enska deildabikarnum á St Mary's í kvöld.

Joelinton virtist hafa komið Newcastle yfir þegar hann skoraði þegar skammt var til hálfleiks en Stewart Attwell dómari leiksins dæmdi hendi.

Það hefur verið mjög umdeilt og margir á því að þetta mark hefði átt að standa.

Newcastle var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik en rétt undir lok fyrri hálfleiksins var Nick Pope stálheppinn að hanga inn á þegar hann fór harkalega í Moussa Djenepo sem þurfti að fara af velli vegna gruns um heilahristing. Pope slapp án þess að fá spjald.

Newcastle hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og það skilaði sér loksins á 73. mínútu þegar Joelinton skoraði nú löglegt mark eftir undirbúning Alexander Isak sem hafði verið ný kominn inn á sem varamaður.

Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Dan Burn sjálfsmark eftir að boltinn hafi hrokkið af hnéinu á honum en markið var dæmt af þar sem boltinn fór af höndinni á Adam Armstrong og þaðan í Burn.

Duje Caleta-Car varnarmaður Southampton fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að fella Allan Saint Maximin sem var að sleppa í gegn.

Isak hefði getað bætt öðru markinu við á síðustu sekúndunum þegar hann lék á Gavin Bizunu í marki Southampton en var kominn í of þröngt færi og skaut í hliðarnetið.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og fara því Newcastle menn með 1-0 forystu á St James' Park.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner