Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. janúar 2023 22:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Kimmich bjargaði stigi með stórbrotnu marki
Mynd: Getty Images

Bayern Munchen missteig sig annan leikinn í röð en liðið hefur aðeins fengið tvö stig úr fyrstu tveimur leikjunum eftir HM.


Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn RB Leipzig um helgina og það sama var upp á teningnum þegar liðið mætti Köln í kvöld.

Ellyes Skhiri kom Köln yfir snemma leiks og það stefndi í sigur Köln en Joshua Kimmich bjargaði stigi fyrir Bayern með stórkostlegu marki.

Hann tók skotið vel fyrir utan vítateig og boltinn endaði á þvi að fara í slána og inn.

RB Leipzig er í 2. sæti deildarinnar á eftir Bayern og náði að minnka forskot liðsins niður í fjögur stig þegar liðið valtaði yfir Schalke í kvöld.

Staðan var 4-0 í hálfleik en Soichiro Kozuki klóraði í bakkann fyrir Schalke snemma í síðari hálfleik. Leikmenn Leipzig höfðu ekki sagt sitt síðasta en Dani Olmo og Yussuf Poulsen skoruðu sitt markið hvor. 6-1 sigur Leipzig því staðreynd.

Þá vann Wolfsburg öruggan sigur á Hertha Berlin og Hoffenheim og Stuttgart skildu jöfn.

Markið hjá Kimmich má sjá neðst í fréttinni.

Bayern 1 - 1 Koln
0-1 Ellyes Skhiri ('4 )
1-1 Joshua Kimmich ('90 )

Hoffenheim 2 - 2 Stuttgart
1-0 Andrej Kramaric ('11 )
1-1 Sehrou Guirassy ('45 )
1-2 Wataru Endo ('77 )
2-2 Andrej Kramaric ('90 )
Rautt spjald: Naouirou Ahamada, Stuttgart ('78)

Hertha 0 - 5 Wolfsburg
0-1 Mattias Svanberg ('4 )
0-2 Maximilian Arnold ('31 , víti)
0-3 Jonas Wind ('34 )
0-4 Ridle Baku ('72 )
0-5 Omar Marmoush ('86 )

Schalke 04 1 - 6 RB Leipzig
0-1 Andre Silva ('7 )
0-2 Benjamin Henrichs ('15 )
0-3 Andre Silva ('44 )
0-4 Timo Werner ('45 )
1-4 Soichiro Kozuki ('56 )
1-5 Dani Olmo ('83 )
1-6 Yussuf Poulsen ('89 )


Athugasemdir
banner
banner
banner