Fotbolti.net
24.02.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Dældu vatni á völlinn til að fá leik frestað

Mynd úr safni.

Mynd úr safni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Enska utandeildarfélagið King's Lynn Town er undir rannsókn en það er sakað um að hafa dælt vatni á völlinn sinn til að fá leik frestað.

Liðið er í harðri fallbaráttu í sinni deild og átti að spila leik 14. febrúar sem var frestað eftir mikla rigningu.

Það hefur síðan komið í ljós að vatnsúðarakerfið á vellinum var í fullri notkun nokkrum klukkutímum áður en spila átti leikinn. Félagið er sakað um að hafa ofbleytt völlinn viljandi til að gera hann óleikhæfan.
Deildarsamtökin hafa beðið um að fá myndband úr öryggiskerfi vallarins en King's Lynn Town var að glíma við meiðsli og veikindi í aðdraganda umrædds leiks, sem var gegn South Shields.

Leikurinn er nú kominn á nýjan leiktíma og á að fara fram þriðjudaginn 17. mars.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.