Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 13:09
Elvar Geir Magnússon
Fór með til Madrídar þrátt fyrir bannið og fékk lófaklapp á flugvellinum
Prestianni á flugvellinum í Lissabon.
Prestianni á flugvellinum í Lissabon.
Mynd: X
Mönnum var heitt í hamsi í fyrri leiknum.
Mönnum var heitt í hamsi í fyrri leiknum.
Mynd: EPA
Portúgalska félagið Benfica heldur áfram að sýna Gianluca Prestianni leikmanni sínum stuðning eftir að hann var dæmdur í eins leiks bráðabirgðabann.

Prestianni er sakaður um að hafa verið með kynþáttaníð í garð Vinicius Jr í fyrri leik Benfica og Real Madrid í umspili Meistaradeildarinnar í síðustu viku.

Vinicius skoraði eina mark leiksins á 50. mínútu. Eftir að hann hafði fagnað fyrir framan stúkuna þá sagði Prestianni eitthvað við hann en setti treyjuna yfir munn sinn þegar hann gerði það, svo ómögulegt er með varalestri að greina hvað hann sagði.

Þrátt fyrir að UEFA hafi sett Prestianni í eins leiks bann og hann megi ekki taka þátt í seinni leiknum sem fram fer annað kvöld þá fór þessi tvítugi leikmaður með samherjum sínum í flugið til Madrídar. Portúgalskir fjölmiðlar segja að honum hafi verið fagnað í flugstöðinni í Lissabon í dag áður en leikmenn Benfica stigu upp í flugvélina.

„Það hefur ekkert verið sannað og þetta bann er óréttlætanlegt. Það er verið að mála Prestianni upp sem rasista en það er hann svo sannarlega ekki. Ég get fullyrt það," segir Rui Costa, forseti Benfica.

UEFA er með málið til rannsóknar og Prestianni segist hafa sagt hommafóbíska móðgun við Vinicius en ekki verið með kynþáttaníð.

Fjölmiðlar telja að UEFA hafi sett bráðabirgðabann þar sem sambandið hafi áhyggjur af því að Prestianni og Vinicius myndu ekki takast í hendur fyrir leik. Argentínumaðurinn gæti fengið tíu leikja bann ef hann verður fundinn sekur um kynþáttaníð.
Athugasemdir
banner
banner
banner