24.03.15 - 18:35
Magnús Már Einarsson
Eyþór Helgi í Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur fengið sóknarmanninn Eyþór Helga Birgisson í sínar raðir. Eyþór Helgi staðfesti á Twitter í kvöld að félagaskiptin séu í höfn.
Eyþór Helgi greindi frá því á dögunum að hann væri á förum frá Víkingi Ólafsvík af persónulegum ástæðum.
Hann hefur æft með Fram að undanförnu og nú eru samningar í höfn.
Eyþór hefur leikið með Ólafsvíkingum síðustu tvö tímabil, hann féll með liðinu úr Pepsi-deildinni 2013 og skoraði svo 11 mörk í 18 leikjum í 1. deildinni í fyrra þar sem Ólsarar höfnuðu í fjórða sæti.
Hann er uppalinn hjá HK en lék með ÍBV í Pepsi-deildinni fyrir nokkrum árum.
Framarar eru að styrkja leikmannahóp sinn fyrir sumarið en framherjinn Alexander Aron Davorsson er einnig kominn til félagsins frá Fjarðabyggð.

Staðfest!! #roadtopepsi #maggilu pic.twitter.com/gwv9oK562w
— Eyþór Helgi (@EysiBirgis) March 24, 2015