Fotbolti.net
24.03.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Van Bronckhorst tekur við Feyenoord í sumar (Staðfest)

Van Bronckhorst var fyrirliði hollenska landsliðsins sem tapaði í úrslitaleik HM 2010

Van Bronckhorst var fyrirliði hollenska landsliðsins sem tapaði í úrslitaleik HM 2010

Canon

Mynd: Getty Images

Giovanni van Bronckhorst tekur við Feyenoord í sumar eftir að Fred Rutten sagðist ekki ætla að framlengja samning sinn við félagið.

Feyenoord er í þriðja sæti hollensku deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir. Ljóst er að félagið mun ekki ná Ajax í öðru sæti deildarinnar þannig að baráttan snýst um að halda sér í þriðja sæti, sem veitir beina inngöngu í Evrópudeildina.
Van Bronckhorst er 40 ára gamall Hollendingur sem lék með liðum á borð við Barcelona og Arsenal á leikmannaferli sínum. Þá var hann einnig lykilmaður í hollenska landsliðinu og fyrirliði.

Bronckhorst skrifar undir tveggja ára samning við félagið eftir að hafa verið aðstoðarknattspyrnustjóri þess síðustu fjögur ár.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.