24.04.21 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Unnar Már aftur í Reyni (Staðfest)

Í leik með Keflavík 2015

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Í leik með Keflavík 2015

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Keflvíkingurinn Unnar Már Unnarsson er genginn í raðir Reynis í Sandgerði á nýjan leik. Varnarmaðurinn, sem er 27 ára gamall, var einn af lykilmönnum Reynis þega liðið vann 4. deildina sumarið 2018.
Í fyrra lék hann með Kórdrengjum í 2. deild en hann skipti til Kórdrengja fyrir tímabilið 2019.
Í fyrra lék hann með Kórdrengjum í 2. deild en hann skipti til Kórdrengja fyrir tímabilið 2019.
Unnar hefur einnig leikið með Víði, Njarðvík og uppeldisfélaginu á sínum ferli.
„Stjórn ksd. Reynis býður Unnar velkominn til baka og fagnar þessum öfluga liðsstyrk," segir í tilkynningu félagsins.

„Stjórn ksd. Reynis býður Unnar velkominn til baka og fagnar þessum öfluga liðsstyrk," segir í tilkynningu félagsins.

